18.10.2009 | 02:37
Nei nú get ég ekki horft og þegið eins og lítið lamb!
Ég er ungur ég veit það en þó vil ég heyra rödd mína þar sem þetta lendur aðallega á MÉR og náttúrlega öllu fólki á mínum aldri. Ég kaus ekki þar sem ég var ekki með kosningar rétt fyrr en nokkrum mánuðum síðan og hef verið að horfa á þennan sirkus nærrum því hlutlaus.
Hver á sök í máli, að mínu mati eru það fjármálaeftirlitin hjá ESB, Englandi, Hollandi og hjá Íslandi sem tók stóran þátt í að leyfa sprelligosunum að leika sér að fyrirtækjunum. Næst í röðinni er bankamennirnir og síðast en ekki síst fyrrverandi ríkistjórn en ekki veit ég hvað hún vissi mikið af þessu sprelli en hún gæti haft leyft þetta fara undir teppið. Svo komu kosningar. Ég skoðaði flokkana nokkuð vel og hugsaði hvað ég myndi kjósa. Ég komst einfaldlega að því fyrir utan Borgarahreyfinguna þar sem hún kom því skýrt að fólkið réði en ekki flokkurinn væru allt sama pakkið í öðruvísi lit. Þessi skoðun hefur lengi vel verið hjá mér og ekki samræmi við skoðanir foreldra minna. Ég sá einfaldlega valið fólks var einfaldlega álíka og að velja hvort þjóðin vildi stikna á grilli eða fara í gasklefa. Þó ef þjóðin hefði valið Borgarahreyfinguna meira þá væri mögulegt að þjóðin hefði farið betur úr en þar sem er ekki svo þýðir voðalítið að væla um það.
En að punktinum sem ég ætla segja. Í þorskastríðinu gamla sem ég hef heyrt marga lofsöngva um hvernig Ísland varðist eins og víkingar gegn innrás breta á fiskimiðin og hvað stjórnin þá höfðu einfaldlega stórar hreðjar til að standa gegn landi með her. Í dag í þessum málum sem eru ennþá meira mikils virði fyrir mína kynslóð og börnin mín, þá lítur út fyrir að stjórnin er með skottið á milli lappanna og með andlitið ofan í drullunni frammifyrir Bretum, Hollendingum og ESB. Hvar er kjarkurinn? Jafnvel Davíð Oddsson sjálfur hafði eitthvern kjark þó að hann er nokkuð umdeildur þá gerði hann það með kjark, ég er ekki að verja hans stjórnarfar en hann var með kjark sem skiptir miklu máli fyrir þjóð sem hefur ekki mörg spil til að spila.
Að ganga í ESB eða ekki? Ég segi ekki því það er ekki langtíma lausn fyrir íslendinga... Hvernig á bændur, byggingaiðnin, veiðarnar að standast undir ódýrum vörum og ódýru vinnuafli frá erlendum löndum? Við þurfum kjark og standa saman ef eitthvað gerist sem þá á maður að standa upp og mótmæla það þarf bara einn mann til þess að byrja og ef þjóðin er sama sinnis þá mun fleiri koma með eins og búsáhaldabyltingin sýndi á sínum tíma. Það þarf meiri kjark í þjóðina og staðráðni og kannski taka Helga hétins að vissu marki til fyrirmyndar!
Ef allt fer í bólakaf í skuld hér á landi þá mun ég einfaldlega flytja mitt ástkæra land þó það er mjög erfitt fyrir mig þá á ég drauma sem ég vil sækja því ég er búinn að fórna of miklu fyrir það til að hætta núna.
E.S. Mig langar að minna þingmenn og alla sem lesa þetta á afrískan málshátt og hér er hann lauslega þýddur "Við aðeins lánum jörðina frá okkar börnum".
|
Icesave-fyrirvörum breytt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


Athugasemdir
kæri vin,,,,, það er tími núna fyrir ykkur ungafólkið að taka völdin, ættuð að hópa ykkur saman og gera það, þið eigið að erfa þetta land,
þú værir góður foringi,,,,, ég styð þig,
Gömlu mennirnir sem sáu um þorskastríðið eru allir farnir og aumingjarnir eftir :)
Sigurður Helgason, 18.10.2009 kl. 04:04
Ég fagna því að þú skulir taka til máls. Hugsandi maður, velkominn inn á sviðið (hundsaðu mögulega kaldhæðnitúlkun setningarinnar).
Ég bendi þér þó á eftirfarandi: Borgarahreyfingin hefði engu breytt, var þegar með stefnuna beint á hártoganir og getur ekki greint aðalatriðin frá aukaatriðum (ESB frá Icesave). Því miður virðist þú gera það líka, en þú ert ungur og mikill áróður frá títtnefndum Davíð, hans fylgismönnum, hjörð þeirra og liði sem ekki er á varðbergi fyrir áróðri fyrir þessu. Hinsvegar hefði BH átt að vita betur þegar þau sögðu nei við ESB, kjánaprikin.
Mér finnst þú þó á milli línanna gera þér grein fyrir að eins og bankarnir snérust um pólitískan heilaþvott/hugsjónir kapítalismans og peninga, þá snýst þessi kúgun um pólitískan varnarleik erlendis, kúgun og... peninga.
Að lokum hrósa ég þér fyrir kjarktalið. Þess er þörf, um það bil til janfs á við kænsku og fyrirhyggju.
Rúnar Þór Þórarinsson, 18.10.2009 kl. 06:43
...jafns...
Rúnar Þór Þórarinsson, 18.10.2009 kl. 06:43
Ég skrifaði þetta í hálf pirringi og þreytu ég afsaka ef skrifin voru eitthvað óskýr, þessi mál er náttúrlega miklu flóknari og ég geri grein fyrir því. Líka að ég persónulega hef ekki nógu miklar upplýsingar um þetta mál til að fara í kjöl og þó það eru fáir held ég sem eru með heildarmynd á þetta.
Hallur, 19.10.2009 kl. 19:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.